Mannætan fær frábæra dóma í Danmörku
Sýrð perla, hreinræktuð íslensk geðveiki, ánægjulegur lestur, vel framreitt, ótrúlega fyndin …
Svona hefur danski gagnrýnendakórinn sungið síðan að Leyndarmálið hans pabba eftir Þórarinn Leifsson kom út í Kaupmannahöfn 28. maí síðastliðinn.
Steffen Larsen, hinn harðskeytti gagnrýnandi stórblaðsins Politiken er hrifinn af bókinni og kallar hana "sýrða perlu"; hann álítur höfundinn eiga rætur sínar í Roald Dahl og Ole Lund Kirkegaard og segir: "Þórarinn Leifsson hefur skrifað — og teiknað — villta og djúpvitra bók um erfiðar aðstæður barna. ... Þórarinn hefur sjálfur myndskreytt bókina af ofboðslegum krafti. Myndir og texti spila vel saman.".
Steffen klykkir út með því að boða næstu bók höfundar sem hann segir að sé um um íslenska fjámálahrunið.
Tröllaspegillin unglingamenningarþáttur í Danska Ríkisútvarpssins spyr í fyrirsögn hvort heldur menn séu fyrir "mannabuff eða rasskinnar í rjómasósu?"
"Ótrúlega fyndin og grótesk saga um ósköp venjulega fjölskyldu með mjög mjög óvenjulegan fjölskylduföður … hægt að lýsa sem nútímafærðri útgáfu af því furðuraunsæi sem við þekkjum frá bók Ole Lund Kirkegaards um Gúmmí Tarzan."
Lesari Dönsku bókasafnsmiðstöðvarinnar (DBC) mælir hiklaust með bókinni:
"Lesið þessa þreifandi geðveiku sögu upp til agna eða gefið báðum kynjum frá ellefu ára aldri. Bókin er auðveld aflestrar og mjög góð skemmtun í öllum sínum hrylling. Ef maður hefur gaman af bókum eins og Flissararnir eftir Roddy Doyle þá ætti þessi ekki að valda vonbrigðum … vel skrifuð og fyndin með alvarlegan undirtón."
Jan Vandall á Bogvægten.dk lýsir bókinni sem "hreinræktuðu íslensku brjálæði" finnst hún "skemmtilega myndskreytt af
höfundi sem á snilldarlegan hátt beini sjónum að vandamálum barna án þess að ásaka. Vel gert."
Á barnabókaheimasíðuna Fortællingen.dk skrifar Janus Andersen:
"Ánægjulegur lestur með fullt af skemmtilegum útúrdúrum sem hugsanir lesendans geta fetað sig eftir.
Þetta er fyrst bók höfundar á dönsku – og vonandi ekki sú síðasta."
Á Bogguide.dk skrifar almenni lesandinn og bóksalinn Lena Winther:
"Leyndarmálið hans pabba er bók sem maður gleypir í heilu lagi. Maður hlær, hryllir sig og svekkir yfir hinum stórskemmtilegu karakterum og stórfurðulega söguþræði.
Bókin er í algerum sérflokki. Eins konar sósíalraunsær barnakrimmi med ævintýralegum myndskreytingum."
Troldspejlet: http://www.dr.dk/DR1/Troldspejlet/Boeger/2009/0619102632.htm
Politiken: http://politiken.dk/boger/skonlitteratur_boger/article729771.ece
Bogvægten.dk: http://www.bogvaegten.dk/1-541-fars-store-hemmelighed.html
Fortællingen.dk: http://fortaellingen.dk/anmeldelse/thorarinn-leifsson-fars-store-hemmeli...
Bogguide.dk: http://www.bogguide.dk/meninger.asp?ID=36277

Comments